|
Nemendaþjónusta ME leitast við að veita öllum nemendum skólans fjölbreytta þjónustu og stuðning. Markmið með þjónustunni er að vinna að velferð og heill allra nemenda skólans og að tryggja jöfn tækifæri til náms og starfa innan skólans.
Nemendaþjónustan sér um að veita samræmda þjónustu þar sem unnið er á heildrænan hátt í málefnum allra nemenda skólans.
- Nemendaþjónustan leggur áherslu á öflugt umsjónarkerfi og persónuleg tengsl á milli nemenda og kennara.
- Nemendaþjónustan leggur áherslu á að markviss kennsla fari fram í námstækni og að hvetja nemendur til að temja sér árangursríkt vinnulag í námi.
- Nemendaþjónustan vinnur að því að að veita nemendum námslegan og persónulegan stuðning til að auka líkur á allir nái að hámarka árangur sinn í námi.
- Nemendaþjónustan aðstoðar nemendur við að öðlast þá sjálfsþekkingu sem nauðsynleg er til að átta sig á hvar náms- og starfsáhugi þeirra liggur.
- Nemendaþjónustan vinnur markvisst að aðgerðum til að byggja upp seiglu nemenda til að þeir verði færari um að takast á við námið.
- Nemendaþjónustan leggur áherslu á að aðstoða nemendur við að tileinka sér heilsusamlegan lífsstíl og líferni með markvissum forvarnaraðgerðum.
Auk almennrar þjónustu er sérstök áhersla lögð á að veita þeim nemendum aðstoð sem búa við einhvers konar sérþarfir sökum þroskaraskana eða veikinda.
Nemendaþjónustan vinnur markvisst að því að greina félagsleg og heilsufarsleg vandamál nemenda og veitir viðeigandi úrræði sem geta falist í fræðslu, stuðningi, faglegri ráðgjöf eða tilvísun til sérfræðinga utan skólans. Sérstök úrræði eru veitt nemendum með leshamlanir, ADHD, sálfélagsleg vandamál, fatlanir, langvarandi og tímabundin veikindi.
Nánari upplýsingar fást ef smellt er á tenglana hér til hliðar.
|