|
Flestir áfangar sem kenndir eru í Menntaskólanum á Egilsstöðum eru einnig í boði í fjarnámi. Þá er notað fjarkennslukerfið Moodle sem vistað er á vefnum www.kennsluvefur.is. Fjarnemar eru hvattir til að fara reglulega inn á kennsluvefinn, kynna sér kennsluáætlanir mjög vel, stunda námið jafnt og þétt yfir önnina og vera í góðu sambandi við kennara sína.
Umsóknarfrestur um fjarnám á haustönn 2010 rann út þann 22. ágúst sl. Umsækjendur eru að fá svarbréf með tölvupósti þessa dagana og eiga áfangarnir að birtast á kennsluvefnum fimmtud. 26. ágúst.
Þá er í samstarfi við aðra framhaldsskóla boðið upp á fjarnám á starfsnámsbrautum eins og félagsliðabraut, sjúkraliðabraut og svæðisleiðsögn um Austurland. Nánari upplýsingar hér: Starfsnámsbrautir í samstarfi FAS, ME og VA.
ATHUGIÐ!
Mikilvægt er að fjarnemar hafi netfang og sæmilega góða nettengingu. Grunnforrit eins og ritvinnsluforrit og forrit til að skoða PowerPoint glærur, þurfa að vera til staðar, þekking nemenda á notkun þeirra og færni til að tileinka sér notkun kennsluvefs. Síðast en ekki síst þurfa fjarnemar að hafa tíma til að stunda námið!
Þeir nemendur sem eru með Hotmail netföng eru beðnir að athuga að líklegt er að fjölpóstur til þeirra lendi í möppu fyrir ruslpóst þar sem honum er eytt eftir aðeins 5 daga. Þetta getur átt við um póst frá ME, en er hægt að forðast með því að setja viðkomandi netfang á lista yfir örugg netföng (Safe List).
Nánari upplýsingar í síma 471-2500 eða hjá kennslustjóra fjarnáms
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
.
|