h3.gif
Forsíđa
Skólinn
Námiđ
Fjarnám
Nemendaţjónusta
Nemendafélag
Heimavist/mötuneyti
Bókasafn
Foreldrafélag
Myndasafn
Einelti
Innskráning
Viđbragđsáćtlun
Áćtlun Menntaskólans á Egilsstöđum um viđbrögđ viđ einelti PDF Prenta Rafpóstur
fimmtudagur, 18 desember 2008

Yfirlýsing

Skólayfirvöld, starfsfólk og nemendaráð Menntaskólans á Egilsstöðum lýsa því yfir að hvorki einelti né annað ofbeldi sé liðið í skólanum. Leitað verður allra ráða til að fyrirbyggja einelti og ofbeldi og til að leysa þau mál sem upp koma á farsælan hátt. Menntaskólinn á Egilsstöðum á að vera öruggur vinnustaður þar sem starfið mótast af virðingu og samvinnu allra til að góður árangur náist í skólastarfinu.

Ávallt er lögð áhersla á góð samskipti innan Menntaskólans á Egilsstöðum.

Skilgreining á einelti
Einelti er neikvætt og illgirnislegt atferli sem felur í sér  endurtekið áreiti og/eða ofbeldi, líkamlegt eða andlegt.  Andlegt einelti felst m.a.  í stríðni, útilokun, hótunum eða höfnun. Líkamlegt einelti getur verið barsmíðar, spörk, hrindingar eða meiðingar af öðru tagi. Eineltinu er stýrt af einstaklingi eða hópi, beinist að öðrum og stendur í nokkurn tíma. Slík samskipti einkennast af ákveðnu ójafnvægi aflsmuna eða annars valds.Einelti getur birst á mismunandi hátt:

  • sem stríðni,
  • sem hótanir,
  • sem útilokun
  • í formi líkamlegs ofbeldis, 

 eða sem annað niðurlægjandi áreiti s.s.:

    • Niðurlæging eða auðmýking t.d. vegna aldurs, kynferðis, kynhneigðar eða þjóðernis.
    • Niðurlægjandi  eða lítilsvirðandi texti eða myndir í tölvupósti, sms, msn, bloggi eða öðrum skriflegum sendingum.
    • Fjandskap eða þögn þegar spurt er eða fitjað upp á samtali.
    • Óþægileg stríðni eða tilraun til fyndni á kostnað annarra.
    • Rógi eða meiðandi sögusögnum er komið af stað.
    • Útilokun frá félagslegum samskiptum.
    • Særandi athugasemdir.

Ekki er um tæmandi yfirlit að ræða!
 

Að þekkja einelti
Sá einstaklingur sem verður fyrir einelti eða ofbeldi segir oft ekki frá því heldur skammast sín og kennir sjálfum sér jafnvel um. Þess vegna er mjög áríðandi að allir þekki einkenni eineltis. Hugsanlega er um einelti að ræða ef nemandinn:

  • Lýsir andúð á skólanum.  
  • Hættir að sinna náminu, einkunnir lækka. 
  • Kemur heim í öllum hléum í skólanum. 
  • Vill ekki taka þátt í félagsstörfum í skólanum. 
  • Missir sjálfstraustið.  
  • Einangrast félagslega.  
  • Virðist óhamingjusamur, niðurdreginn, þunglyndur eða í andlegu ójafnvægi.  
  • Hefur slæma matarlyst, höfuðverk eða magapínu. 
  • Þjáist af svefntruflunum 
  • Hefur þreytutilfinningu eða sýnir sljóleiki 
  • Neitar að segja frá hvað amar að.  
  • Sýnir miklar skapsveiflur, verður árásargjarn og erfiður viðureignar.  
  • Kvartar undan vanlíðan á morgnana

 Verði foreldrar eða starfsmenn varir við einhver þessara einkenna eða önnur sem benda til að nemandanum líði illa er mikilvægt að kanna málið og hafa samband við stjórnendur, námsráðgjafa eða umsjónakennara viðkomandi nemanda, sem vísar málinu til eineltisteymis ME.

Ef upp kemur einelti eða annað ofbeldi í skólanum er það í höndum eineltisteymis skólans að vinna að lausn málsins. Í því eiga þrír starfsmenn sæti og eru þeir úr hópi starfmanna nemendaþjónustu og skólastjórnenda. Við upphaf hverrar haustannar kemur skólameistari og nemendaþjónusta saman og skipar í eineltisteymi. Einn starfsmanna eineltisteymis verður formaður þess og ber ábyrgð á að kalla teymið saman.  Annað starfsfólk, foreldrar og nemendur geta aðstoðað við lausn mála. Vakni grunur um einelti eða ofbeldi á strax að láta starfsmenn eineltisteymis vita.

 

Aðgerðaáætlun

  • Brýnt er fyrir nemendum skólans að þegar ágreiningur kemur upp þeirra á milli sé rétt að ræða málin og reyna að komast að málamiðlun og fá aðstoð til þess frá öðrum ef á þarf að halda. Þetta er kynnt fyrir nemendum með reglubundnum hætti.
  • Nemendur eru hvattir til að láta eineltisteymi vita ef þeir eða aðrir verða fyrir einelti eða ofbeldi.  Öllum á að geta liðið vel í skólanum og njóta virðingar sem einstaklingar. Gera þarf nemendum grein fyrir því að ef þeir segja frá því að einhverjum líði illa vegna eineltis eða annars ofbeldis sé það trúnaðarmál. Upplýsingar um starfandi eineltisteymi hverju sinni er að finna á heimasíðu skólans. 
  • Nemendur eru hvattir til að taka afstöðu gegn einelti og ofbeldi í verki með því að bregðast við til hjálpar og láta vita. Einnig er mikilvægt að gera nemendum grein fyrir því að það að skilja útundan eða hunsa, senda samnemendum dónaleg eða særandi skeyti í sms, msn eða á bloggsíðum og að fjalla um samnemendur sína á niðurlægjandi eða særandi hátt á bloggsíðum er jafnmikið einelti og að hæðast að eða berja.
  • Allir nemendur eru fræddir um þá afstöðu skólans að einelti og ofbeldi líðst ekki, og að verði nemendur uppvísir að slíku geti viðurlögum verðið beitt ef þurfa þykir s.s. tímabundnum brottrekstri úr skóla.
  • Starfandi Nemendaráð vinnur með starfsfólki skólans til þess að sporna gegn einelti.
  • Allir foreldrar/forráðamenn fá upplýsingar um afstöðu skólans í eineltis- og ofbeldismálum og eru hvattir til að leggja skólanum lið. Upplýsingar um starfandi eineltisteymi eru sendar í fréttabréfi til foreldra sem og áherslur skólans í eineltismálum.
  • Foreldrar eru beðnir að láta börn sín vita að þeir styðji afstöðu skólans og vilji hvorki að þau séu lögð í einelti, leggi aðra í einelti eða séu áhorfendur að einelti eða ofbeldi.
  • Foreldrar eru hvattir til að hafa samband við eineltisteymi, umsjónarkennara, námsráðgjafa eða skólameistara ef þeir hafa grun um einelti eða ofbeldi í skólanum.
  • Kanna skal líðan nemenda reglulega og verður það unnið í samráði við starfshóp um innra mat í skólanum.
  • Áætlun um viðbrögð við einelti eru kynnt reglulega.

Viðbragðsáætlun

  1. Vinnuferli eineltisteymis ef tilkynningar berast um grun um einelti eða áreiti:
  2. Formaður kallar teymi sama.
  3. Málið er kannað m.a. með viðtölum við þá aðila sem eiga hlut að máli.
  4. Haft er samband við forráðamenn ólögráða nemenda (gerenda / þolenda) ef þurfa þykir.
  5. Teymið gerir tillögur að lausn málsins og leggi það til að viðurlögum verði beitt, kemur það þeim áleiðis til skólameistara.
  6. Kannað verður eftir ákveðinn tíma hvort málið eru leyst og eineltinu hefur linnt.  Ef svo er ekki getur þurft að leita aðstoðar aðila utan skólans við lausn málsins. 

 

 

Grunur um einelti

Umsjónarkennari/námsráðgjafi/skólastjórnendur fá ábendingu um eineltið
Eineltisteymi virkjað, það aflar sér upplýsinga um meint einelti og skráir niður
Staðfestur grunur um eineltiSamband við aðila málsins nemendur og/eða forráðamenn nemenda undir 18 ára aldri      Unnið að lausn samkvæmt aðgerðaáætlun skólans  Staðfest að ekki sé um einelti að ræðaGögn geymd
Málið leystSamband við aðila, nemendur og/eða forráðamenn nemenda undir 18 ára aldri

Stuðningur við gerendur og/eða þolendur sé þess þörf
Málið ekki leystÁframhaldandi vinna í eineltisteymi þar til lausn fæstSamband við aðila, nemendur og/eða forráðamennStuðningur sé þess þörf
 
 

 

me_vefpostur  

Kennsluvefur

inna
 

  
Menntaskólinn á Egilsstöðum | v/Tjarnarbraut | 700 Egilsstaðir | Sími 471-2500 | skrifstofa@me.is | Kt. 610676-0579