h5.gif
Forsíđa
Skólinn
Námiđ
Fjarnám
Nemendaţjónusta
Nemendafélag
Heimavist/mötuneyti
Bókasafn
Foreldrafélag
Myndasafn
Einelti
Innskráning
Viđbragđsáćtlun
Vísindaferđ erfđafrćđinema PDF Prenta Rafpóstur
laugardagur, 28 nóvember 2009

Fimmtán erfðafræðinemar úr VA og ME fóru í vettvangsferð til Reykjavíkur mánudaginn 23. nóvember undir stjórn dsc00076kennara síns, Þórðar Júlíussonar.

Þar heimsóttu þau Blóðbankann, Íslenska erfðagreiningu og erfðafræðideild HÍ í náttúruvísindahúsinu Öskju. Í Blóðbankanum fengu þau fyrirlestur um starfsemina og skráðu sig flest sem blóðgjafa með tilheyrandi viðtölum og sýnatökum. Hjá ÍE voru þeim kynntar grunnforsendur fyrirtækisins og fengu fræðilega útskýringu á starfseminni. Auk þess fengu þau m.a. að kíkja inn í lífsýnageymsluna þar sem sýni úr um 120 þúsundum einstaklinga er að finna.

Í HÍ var þeim kynnt námsframboð skólans og starfsaðstaða í Líffræðiskor. Í lokin kíktu nemendurnir við í Land-og ferðamáladeild. Ferðin var vel heppnuð og ætti að vera gott veganesti fyrir nemedur sem eru að ljúka framhaldsskóla.

 

 

 

me_vefpostur  

Kennsluvefur

inna
 

  
Menntaskólinn á Egilsstöðum | v/Tjarnarbraut | 700 Egilsstaðir | Sími 471-2500 | skrifstofa@me.is | Kt. 610676-0579