h6.gif
Forsíđa
Skólinn
Námiđ
Fjarnám
Nemendaţjónusta
Nemendafélag
Heimavist/mötuneyti
Bókasafn
Foreldrafélag
Myndasafn
Einelti
Innskráning
Viđbragđsáćtlun
Brautskráning um jól PDF Prenta Rafpóstur
mánudagur, 21 desember 2009

Á föstudaginn, 18. desember var haustönn skólans slitið og stærsti hópur jólaútskriftarnemenda frá upphafi útskrifaðist. Alls luku 24 nemendur stúdentsprófi, ellefu af félagsfræðibraut, þrír af málabraut, átta af náttúrufræðibraut, einn af viðskipta- og hagfræðibraut og einn með viðbótarnám til stúdentsprófs af starfsnámsbrautum.

Einnig luku sex nemendur námi af félagsliðabraut,, fimmtán nemendur luku skrifstofubraut II, sex nemendur luku grunnnámi fataðina og einn nemandi brautskráðist af sjúkraliðabraut.

Nokkrir nemendur fengu viðurkenningar fyrir góðan námsárangur. Af starfsnámsnemendum fengu þau Sigríður Berglind Sigurðardóttir, félagsliði, viðurkenningu fyrir góðan námsárangur og Kristinn B. Valdimarsson, félagsliði, fyrir frábæra ástundun.

Af nýstúdentum fengu þau Ragnheiður Jara Rúnarsdóttir viðurkenningu fyrir góðan námsárangur í þýsku, Jón Vigfússon fyrir góðan árangur í spænsku, Vordís Guðmundsdóttir fyrir góðan árangur í ensku og Hrafnhildur Tíbrá Halldórsdóttir fyrir góðan námsárangur í íslensku.

Skólinn óskar öllum útskriftarnemendum hjartanlega til hamingju með árangurinn og velfarnaðar í námi og starfi í framtíðinni.

 

 

me_vefpostur  

Kennsluvefur

inna
 

  
Menntaskólinn á Egilsstöðum | v/Tjarnarbraut | 700 Egilsstaðir | Sími 471-2500 | skrifstofa@me.is | Kt. 610676-0579