|
mánudagur, 22 febrúar 2010 |
|
Þriðjudaginn 23. og miðvikudaginn 24. febrúar eru opnir dagar í skólanum. Hefðbundin stundaskrá er lögð til hliðar þessa daga og nemendur sækja ýmis konar námskeið og fara í ferðalög, skíðaferð, matreiðslunámskeið, skrrautskrift, kynning á teiknimyndum, íþróttamót og margt annað spennandi verður á döfinni þessa tvo daga. Upphaflega átti að taka þrjá daga undir opna daga, en vegna sparnaðar var hætt við Austfirsku Ólympíuleikana. Þess í stað verður föstudegi bætt við langa helgi þegar kemur að undanúrslitum í Gettu betur. Það verður annað hvort föstudagurinn 12. eða 19. mars nk. Nánari upplýsingar um það verða birtar þegar ljóst er hvora helgina strákarnir okkar keppa.
|