|
mánudagur, 14 júní 2010 |
|
Menntaskólanum á Egilsstöðum var slitið 22. maí sl. og 35 stúdentar voru útskrifaðir auk eins nemanda af starfsbraut. Fimmtán nemendur útskrifuðust af félagsfræðibraut, þrettán af náttúrufræðibraut, sjö af málabraut og einn af viðskipta- og hagfræðibraut. Fimm nemendur luku íþróttabraut samhliða stúdentsprófi og einn listnámsbraut. Hornfirðingurinn Hrefna Rún Kristinsdóttir lauk námi af málabraut og náttúrufræðibraut. Níu nýstúdentar luku námi á þremur árum. Það er mesti fjöldi hraðbrautarstúdenta sem skólinn hefur útskrifað til þessa.
Hrefna Rún, Anna Berglind Jónsdóttir og Björgheiður Margrét Helgadóttir hlutu flestar viðurkenningar vegna góðs námsárangurs. Anna og Björgheiður eru báðar frá Egilsstöðum. Að auki fengu Guðlaug Björgvinsdóttir frá Reyðarfirði, Steinar Bragi Sigurðarson frá Egilsstöðum, Hjalti Þórhallsson úr Eyjafirði og Hjálmar Ingólfsson úr Fellabæ viðurkenningar fyrir góðan árangur í stökum námsgreinum. Enn fremur voru veittar viðurkenningar fyrir ötult starf í þágu félagslífs nemenda.
10 ára stúdentar heiðruðu gamla skólann sinn í á útskriftardaginn gömlu kennurunum sínum til mikillar ánægju.
|