Opið verður fyrir umsóknir í fjarnám á vorönn 2025 frá 15. nóvember - 30. desember 2024.
Hægt er að stunda fjarnám í flestum áföngum sem kenndir eru við Menntaskólann á Egilsstöðum. Skólaárið skiptist í fjórar rúmlega 7 vikna lotur sem kallast spannir, tvær á haustönn og tvær á vorönn (fyrri og seinni). Ekki er mælt með að nemandi taki fleiri en tvo áfanga á spönn með öðru námi eða vinnu þar sem nám í spannakerfi er á tvöföldum hraða miðað við hefðbundið annakerfi. Tekið er við umsóknum fyrir heila önn í einu, það er báðar spannir annarinnar en einnig getur verið mögulegt að koma beint inn á seinni spönn ef pláss leyfir.
Svarbréf eru send til umsækjenda um það leyti sem kennslan hefst ásamt greiðslukröfu í heimabanka. Í svarbréfinu eru meðal annars upplýsingar um ME-netfang sem nemendur fá í upphafi náms og aðgangsorð. Mikilvægt er að fjarnemar noti ME-netfangið því þangað fer allur póstur frá skólanum og kennurum og það gefur aðgang að námsvefnum Canvas. Fjarnemar skólans fá vefútgáfu (online) af Office-forritum í gegnum ME-netfangið. Nemandi þarf að vera með fartölvu og góða nettengingu. Mikilvægt er að nemendur fari strax inn á Canvas og sinni náminu þar reglulega.
Menntaskólinn á Egilsstöðum býður í samstarfi við 11 aðra framhaldsskóla á landsbyggðinni upp á fjarnám á starfsnámsbrautum undir nafni Fjarmenntaskólans. Nánari upplýsingar eru á fjarmenntaskolinn.is.
Nánari upplýsingar veitir kennslustjóri fjarnáms á fjarnam@me.is.