Foreldrum/forráðafólki boðið í kaffispjall og kynningu 1. sept

Menntaskólinn á Egilsstöðum býður foreldra/forráðafólk nýnema velkomið á fræðslufund og spjall um skólastarfið, námsfyrirkomulagið og þjónustu skólans, sunnudaginn,1. september kl. 17:30 í kennsluhúsi skólans. Gengið er inn um aðalinngang.

Fræðslufundinum verður streymt á Zoom fyrir þau sem ekki geta mætt á staðinn.
Slóðin er hér.

Athugið að fundurinn verður tekinn upp.

Að kaffispjallinu loknu (um kl. 18:15) verðum aðalfundur Foreldra- og hollvinasamtaka ME þar sem öll eru velkomin.

Kaffi á könnunni!

Hlökkum til að sjá ykkur.