Laust í fjarnám á seinni spönn

Opið er fyrir umsóknir í áfanga sem laust er í á seinni haustspönn. Umsóknarfrestur er til 16. október. Nokkrir áfangar eru í boði, bæði kjarnagreinar og áhugaverðir valáfangar. Námsframboðið og allar upplýsingar eru hér á heimasíðunni undir fjarnám. Einnig má senda póst á fjarnam@me.is ef einhverjar spurningar vakna eða aðstoð vantar við valið.