Rafræn sýning á lokaverkefnum útskriftarnemenda

Rafræn sýning á lokaverkefnum útskriftarnemenda ME haust 2024 hefur verið opnuð. Næstkomandi föstudag, þann 20. desember, munu 18 nemendur útskrifast frá skólanum. Lokaverkefnin eru fjölbreytt að efni og innihaldi, fræðandi og áhugaverð. Um leið og nemendum er óskað til hamingju með lærdómsrík verkefni fá þau kærar þakkir fyrir skemmtilega samveru síðastliðin ár og óskir um velfarnað í framtíðinni. Slóðin á sýninguna er hér.